Í tilefni af alþjóðlegum degi jarðar, sem haldinn er 22. apríl ár hvert, býður Krónan viðskiptavinum sínum að taka strætisvagn í matvörubúðina til að draga úr umferð einkabílsins á alþjóðadeginum og leggja þannig sitt af mörkum til umhverfisvænni ferðamáta.

Framtak Krónunnar til dags jarðar í ár verður unnið í samstarfi við Strætó bs.,  og fá allir sem mæta með fjölnota innkaupapoka í strætó á höfuðborgarsvæðinu frítt far með vagninum þann 22. apríl næstkomandi.

Tilvalin leið í Krónuna

„Dagur jarðar hefur verið haldinn árlega í fjöldamörg ár og er ætlað að minna okkur á að fara vel með jörðina okkar og umhverfið og umfram allt hvetja fólk til að leggja sitt af mörkum. Það eru margvíslegar leiðir til að fara betur með umhverfið okkar og þar má meðal annars nefna samgöngumáta okkar. Á höfuðborgarsvæðinu er fjöldi Krónuverslana og eru þær allar nálægt stoppistöð Strætó. Okkur fannst því upplagt að fara í samstarf með Strætó og í sameiningu lyfta þessu málefni upp, þá bæði með því að hvetja fólk til að nýta sér umhverfisvænni fararmáta og í leiðinni minna það á að grípa fjölnota innkaupapokann með sér,“ segir Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar.

Vinnum ötullega að orkuskiptum

„Við fögnum þessu framtaki Krónunnar og hvetjum auðvitað sem flesta til að taka fram fjölnota pokann sinn og þiggja frítt far í búðina með Strætó. Við hjá Strætó leggjum ríka áherslu á orkusparnað og stefnum á að skipta út dísilknúnum strætisvögnum fyrir umhverfisvænni orkugjafa  eins og rafmagns-, vetnis- og metanknúna vagna. Markmið okkar er að vera komin með kolefnislausan vagnaflota árið 2030,“ segir Markús Vilhjálmsson, sviðsstjóri sölu-, markaðs- og þjónustusviðs Strætó.